Rétt mál er öflugt bílasprautunar- og viðgerðarverkstæði staðsett í Hafnarfirði sem býður upp á heildarlausnir í réttingum og málun ökutækja. Fyrirtækið nýtir fullkomnustu tækni sem í boði er á markaðnum og leggur metnað sinn í að skila verkum af einstakri nákvæmni og fagmennsku. Rétt mál þjónustar bæði einstaklinga og fyrirtæki og leggur áherslu á skjótan afgreiðslutíma, traust viðskiptasambönd og áreiðanlegar niðurstöður.
Tengdó hannaði nýjan vef fyrir Rétt mál þar sem sérstök áhersla var lögð á notendavæna hönnun og góða aðgengisupplifun í öllum tækjum – hvort sem um ræðir síma, spjaldtölvur eða borðtölvur. Vefurinn endurspeglar fagmennsku Rétt mál og veitir viðskiptavinum skýra yfirsýn yfir þjónustuframboð fyrirtækisins með nútímalegri framsetningu og stílhreinni hönnun.