MG Bón býður upp á bílaþrif með allt öðrum hætti en gengur og gerist. Með sérstakri gufuhreinsitækni og háþróaðri Nanó vörn tryggir MG Bón einstaka hreinsun og vörn fyrir ökutæki – bæði að utan og innan. Gufuhreinsunin fjarlægir óhreinindi á áhrifaríkan hátt án þess að skemma lakkið og Nanó húðin veitir bílum glansandi áferð og langtíma vörn gegn óhreinindum, ryki og veðri.
Þjónustan hentar öllum gerðum ökutækja og er bæði umhverfisvæn og vatnssparandi – sem gerir MG Bón að frábærum kost fyrir þá sem vilja fara mildari leiðir í bílaumhirðu án þess að fórna gæðum.
Vefurinn fyrir MG Bón var hannaður af Tengdó með skýrum fókus á að sýna framúrskarandi þjónustu og nýstárlega nálgun fyrirtækisins. Einföld uppbygging, nútímaleg hönnun og áhersla á fræðandi efni tryggja að viðskiptavinir geti auðveldlega fræðst um ferlið, skoðað þjónustuframboð og bókað tíma með lágmarks fyrirhöfn.