Kallik er ein af stærri heildverslunum á Íslandi og þjónustar fjölmarga viðskiptavini með vandaðar vörur frá velþekktum alþjóðlegum vörumerkjum. Í vöruframboði þeirra má meðal annars finna Lindor súkkulaði, Torres vín og margt fleira sem bæði verslanir og veitingaaðilar treysta daglega. Kallik leggur áherslu á stöðugleika, góða þjónustu og úrval sem stenst samanburð.
Tengdó hannaði nýja vefverslun fyrir Kallik með áherslu á að einfalda flókin ferli og styðja við rekstur stórs heildsala. Verkefnið innihélt talsverða sérforritun og samþættingu við bókhaldskerfi fyrirtækisins. Með þessum lausnum var tryggt að vefurinn gæti haldið utan um flókin verðskráarkerfi, pantanastýringu og aðgengi fyrir viðskiptavini með mismunandi þörf og réttindi.
Nýi vefurinn er bæði hraður, öruggur og hannaður með notendaupplifun í fyrirrúmi – hvort sem viðskiptavinir eru að versla á skrifstofu eða í símanum á ferðinni. Með því að sameina tæknilega sérlausn og nútímalega hönnun hefur Kallik nú vefverslun sem styður við daglega starfsemi þeirra og einfaldar líf viðskiptavina.