Hótel Varmaland

Tengdó hannaði nýjan vef fyrir Hótel Varmaland með það að markmiði að miðla stemningu staðarins og einfalda gestum að bóka dvöl
Ár
2023
Kúnni:
Hótel Varmaland
Verkefni:
Vefhönnun
Verkþættir:
Vefhönnun

Hótel Varmaland er glæsilegt hótel staðsett í kyrrlátu og fallegu umhverfi í Borgarfirði. Þar mætast íslensk náttúra, nútímaleg þægindi og hlýleg þjónusta – og skapa einstaka upplifun fyrir gesti sem sækjast eftir ró, fegurð og persónulegri dvöl. Með stuttan akstur frá Reykjavík er Hótel Varmaland kjörinn áfangastaður fyrir þá sem vilja njóta sveitakyrrðar í nánum tengslum við fjöll, skóga og heitar laugar.

Tengdó hannaði nýjan vef fyrir Hótel Varmaland með það að markmiði að miðla stemningu staðarins og einfalda gestum að bóka dvöl. Vefurinn sameinar fallega framsetningu, hnitmiðað efni og greiða leið að bókun – hvort sem notendur skoða á tölvu, síma eða spjaldtölvu. Með sterku myndefni og skýrri uppbyggingu fangar vefurinn upplifunina sem bíður gestanna í Borgarfirði.

Önnur

verkefni

Hönnun
Hugmyndavinna
Gigtarfélag
Íslands
Rekstur
Fréttakerfi
Bílablogg.is
Hönnun
Bókunarkerfi
Luxurythai
massage