Bílablogg er sívaxandi vefur tileinkaður öllu sem tengist bílum – allt frá reynsluakstri nýjustu bílanna til dýpri greininga, frétta og skemmtilegra myndbanda. Með fjölbreyttu og áhugaverðu efni dregur Bílablogg að sér þúsundir lesenda á mánuði og hefur byggt upp tryggan hóp áhugasamra bílaunnenda. Hvort sem þú hefur áhuga á nýjustu rafbílunum, klassískum sportbílum eða einfaldlega vilt fá gagnrýna umsögn um næsta bíl – þá er Bílablogg rétti staðurinn.
Tengdó sér alfarið um vefinn fyrir Bílablogg – allt frá fyrstu hönnun og þróun, yfir í daglegt viðhald og rekstur. Vefurinn er byggður upp með hraða, stöðugleika og góða notendaupplifun að leiðarljósi, enda skiptir það máli þegar hundruð notenda fletta efni og horfa á myndbönd á hverjum degi. Með tæknilega sterku bakendaumhverfi, vel útfærðri uppsetningu og fallegri hönnun hefur Bílablogg fest sig í sessi sem traustur og skemmtilegur miðill í íslenska bílalandslaginu.