Tengdu.is

Tengdó hannaði nýjan vef fyrir Tengdu með skýru markmiði: að einfalda ferlið fyrir nýja og núverandi viðskiptavini
Ár
2024
Kúnni:
Tengdu.is
Verkefni:
Vefhönnun
Verkþættir:
VefhönnunVefverslun

Tengdu.is, áður þekkt sem Kapalvæðing í Keflavík, býður upp á heildarlausnir í fjarskiptum fyrir heimili og fyrirtæki. Í boði eru ljósleiðaratengingar, símaþjónusta, sjónvarpsútsendingar og streymisþjónusta í appi – allt með áherslu á stöðugleika, skýra þjónustu og sanngjarnt verð. Fyrirtækið hefur áratuga reynslu á markaði og þjónustar í dag stóran hóp ánægðra viðskiptavina á Suðurnesjum og víðar.

Tengdó hannaði nýjan vef fyrir Tengdu með skýru markmiði: að einfalda ferlið fyrir nýja og núverandi viðskiptavini. Verkefnið fól í sér heildarhönnun, uppsetningu á pöntunarkerfi og þróun söluferla á vefnum. Gestir geta nú valið þjónustu, skráð sig og fylgst með pöntuninni með einföldum og skiljanlegum hætti – hvort sem þeir skoða á síma eða tölvu.

Með þessari lausn hefur Tengdu nú stafrænt umhverfi sem styður við hraðan vöxt fyrirtækisins og eykur aðgengi að þeirra öflugu fjarskiptaþjónustu.

Önnur

verkefni

Hönnun
Hugmyndavinna
Gigtarfélag
Íslands
Rekstur
Fréttakerfi
Bílablogg.is
Hönnun
Bókunarkerfi
Luxurythai
massage